Stigahæstu hundar FHD 2025
Nýbúið er að heiðra stigahæstu hunda Fuglahundadeildar HRFÍ fyrir árið 2025. Að þessu sinni var það Hraundranga AT Ísey Lóa sem varð stigahæsti hundurinn í opnum flokki á norskum heiðarprófum og óskum við Guðjóni og Ísey til hamingju með góðan árangur á árinu.
Hraundranga AT Mói var stigahæstur í opnum flokki á norskum sækiprófum og óskum við þeim Kára og Móa innilega til hamingju með það.
Hraundranga ræktun varð stigahæsta ræktunarnafnið í opnum flokki á heiðarprófum eftir norskum reglum og því vert að óska Helga og Eydís til hamingju með árangurinn.
Að sjálfsögðu óskum við öllum öðrum hundum og eigendum þeirra sem voru heiðraðir voru til hamingju með árangurinn. Breton heldur áfram að gera það gott og það verður spennandi að fylgjast með Breton á nýju Breton- ári en nú taka við sýningar, veiðipróf og sækipróf í sumar.
🙂 Áfram Breton 🙂



