Írsk seta prófið
Veiðipróf Írsk seta deildarinnar fór fram um helgina. Prófið hófst fimmtudaginn 23. apríl og því lauk í dag 26. apríl með keppnisflokki.
Skráning í prófið var góð, þátttakendur vour ánægðir með stemningu, hunda og menn. Leiðendur samglöddust kollegum fyrir hverja einkunn og hvert sæti.
Því miður var ekki mikið um fugl í dag þegar keppnisflokkur fór fram og samkvæmt reyndum mönnum voru aðstæður erfiðar.
Þátttakendur nutu samverunnar með hundum sínum og
Fjórir bretonar voru í prófi um helgina. Fjórir í OF og þar af hljóp einn í keppnisflokki í dag. Midvejs XO. Leiðandi: Siggi Benni.
Tveir bretonar hlutu einkunn í OF. Fóellu Ari hlaut 3. einkunn á fimmtudaginn. Leiðandi: Albert Steingrímsson. Í gær föstudag hlaut svo Ismenningens Billi 2. einkunn. Leiðandi: Ívar Þór Þórisson.
Helstu úrslit í prófinu voru þessi:
Fimmtudagur 23. apríl:
3. einkunn og besti hundur prófs í UF: Rjúpnabrekkur Funi. Leiðandi: Þorsteinn Friðriksson.
1. einkunn og besti hundur prófs í OF: Vatnsenda Kjarval. Leiðandi: Ásgeir Heiðar
Laugardagur 25. apríl:
2. einkunn og besti hundur prófs í UF: Rjúpnabrekku Þruma. Leiðandi: Þorsteinn Friðriksson.
1. einkunn og besti hundur próf í OF: Vatnsenda Kjarval. Leiðandi: Ásgeir Heiðar.
Sunnudagur 26. apríl:
1. sæti í keppnisflokki og meistarastig: Heiðnabergs Bylur von Greif. Leiðandi: Jón Garðar. Þórarinsson
2. sæti í keppnisflokki: Háfjalla Týri. Leiðandi: Einar Guðnason.
Úrslit og einkunnir sem náðust um helgina má finna á www.fuglahundadeild.is innan fárra daga.
Hjartanlega til hamingju með árangurinn einkunnahafar!
Rétt er að minna á að skráning er nú hafin í Kaldaprófið sem fram fer á norðurlandi helgina 8. – 10. maí. Er þetta próf jafnframt síðasta veiðpróf vetrarins.
Upplýsingar um prófið er að finna á vef Fuglahundadeildar. Sjá HÉR. Nánar upplýsingar veitir stjórn fuglahundadeildar. Hægt er að senda þeim skilboð af vefsíðu deildarinnar. Senda póst á FHD.