Sumarsýning HRFÍ 21.-22.06.25

Fyrri sumarsýning HRFÍ fór fram um síðustu helgi og var það tvöföld sýning. Fyrri dagurinn var Reykjavík Winner25 og Norðurlandasýning og alþjóðleg sýning seinni daginn en aðeins 2 Bretonar mættu í dóm eða þau Netta og Hraundranga AT Blue. Dómarar voru að þessu sinni Anne Livø Buvik frá Noregi og Vija Klucniece frá Lettlandi og voru úrslit eftirfarandi:

Laugardagur – Dómari Anne Livø Buvik
Hraundranga AT Blue var sýndur í Meistaraflokki af Elínu og varð besti hundur tegundar BOB með Excellent, CK og íslenskt- og norðurlanda meistarastig – RW25
Netta var sýnd í meistaraflokki af Sigrúnu og varð besti hundur af gangstæðu kyni BOS með Excellent, CK og íslenskt- og norðurlanda meistarastig – RW25

Sunnudagur – Dómari Vija Klucniece
Netta var sýnd í meistaraflokki af Sigrúnu og varð besti hundur tegundar BOB með Excellent, CK, íslenskt og alþjóðlegt meistarastig (CACIB)
Hraundranga AT Blue var sýndur í Meistaraflokki af Elínu og fékk Excellent

Með þessum árangri bæta bæði Netta og Blue við sig nýjum meistaratitlum en Netta náði sínu síðasta CABIB stigi og getur nú sótt um Alþjóðlegan sýningarmeistara titil (C.I.E). Við óskum Nettu og eigendum hennar innilega til hamingju með glæsilegan árangur Nettu sem þau geta verið stolt af. Eigendur Nettu sögðu frá því að nú væri Netta komin í sýningarfrí þar sem allir titlar, sem hægt er að fá, séu komnir í hús en líklegt er að Netta sýni sig í öldungaflokki þegar af því kemur.
Hraundranga AT Blue náði sínu síðasta norðurlanda stigi og getur nú sótt um Norðurlandasýningarmeistara titil (NORDICCh) og óskum við Blue og eigendum hans einnig innilega til hamingju með nýja titilinn.

Sjáumst í ágúst á næstu sýningu – Áfram Breton

Hraundranga AT Blue BOB – Netta BOS – Dómari Anne Livø Buvik
Netta BOB – Dómari Vija Klucniece