Tindur stigahæsti unghundurinn!

Þau einstaklega ánægjulegu tíðindi bárust á dögunum að hinn franskættaði Puy Tindur de La Riviere Ouareau náði þeim frábæra árangri að verða stigahæsti unghundur Fuglahundadeildar árið 2020. Við óskum eigendum hans þeim Helga og Eydísi, sem er leiðandi hans, hjartanlega til hamingju. Það verður spennandi að fylgjast með þessum efnilega unga breton sem ætlað er það framtíðarhlutverk að stækka genamengi okkar litla en vandaða stofns bretona á Íslandi.