Deildarsýning fuglahunda í grúbbu 7.

Um síðustu helgi fór fram önnur sýning ársins en það var deildarsýning hjá grúbbu 7. Dómari var að þessu sinni hin hollenska Dinanda Mensink og mættu 4 Bretonar í dóm hjá henni og voru úrslit eftirfarandi:

Hraundranga AT Ísey Lóa var sýnd í vinnuhundaflokki af Guðjóni og varð besti hundur tegundar BOB með Excellent, CK og íslenskt stig.
Hraundranga AT Blue var sýndur í opnum flokki af Elínu og varð besti hundur af gangstæðu kyni BOS með Excellent, CK og íslenskt stig.
Netta var sýnd í meistaraflokki af Sigrúnu og varð önnur besta tík með Excellent og CK
Myrtallens MA Björt var sýnd af Eydísi og varð þriðja besta tík með Excellent og CK

Hraundranga AT Ísey – BOB
Hraundranga AT Blue – BOS
Netta – 2. Excellent með CK
Myrtallens MA Björt – 3. Excellent með CK

Hraundranga AT Ísey skellti sér síðan í úrslit í grúbbu 7 þar sem hún hafnaði í 3.sæti og óskum við Guðjóni innilega til hamingju með Ísey.

Hraundranga AT Ísey – 3.sæti í grúbbu 7

Breton eignaðist nú 2 nýja meistara þar sem Ísey getur nú sótt um titilinn Íslenskur meistari (ISCh) og Blue um titilinn Íslenskur sýningarmeistari (ISShCh). Við óskum eigendum allra þessara hunda sem mættu í dóm nú um helgina til hamingju með árangurinn og hlökkum til að sjá sem flesta Bretona á næstu sýningu í júní

🙂 Áfram Breton 🙂