Veiðipróf Norðurhunda 1.-3.maí 2026

Síðasta veiðipróf vorsins var haldið af Norðurhundum á Fljótsheiði um síðustu helgi og var prófið gert út frá Narfastöðum í Reykjadal. Prófað var í opnum flokki bæði föstudag og laugardag og svo var keppnisflokkur haldinn á sunnudeginum en prófið dæmdu þeir Cato Martin Jonassen frá Noregi og hinn íslenski Einar Kaldi Örn Rafnsson. 5 Bretonar mættu til leiks að þessu sinni, Fóellu Aska, Puy Tindur De La Riviere Ouareau, Fagradals Bella Blöndal og Hraundranga AT Mói og Assa. Fljótsheiðin iðaði af rjúpu alla dagana og þær stríddu bæði mönnum og hundum en nokkrar einkunnir komu þó í hús.


Á föstudeginum náðu 2 hundar einkunn og þarf af fékk Hraundranga Assa 3.einknunn.
Á laugardeginum voru einnig gefnar 2 einkunnir og þar fékk Puy Tindur De La Riviere Ouareau 2.einkunn ásamt því að vera valinn besti hundur prófs þann daginn.
Á sunnudeginum fóru Aska, Assa og Mói í keppnisflokk en náðu því miður ekki sæti þar.

Hraundranga AT Assa 3.einkunn – Dómari Cato Martin

Puy Tindur De La Riviere Ouareau 2.einkunn og BHP – Dómari Cato Martin og Einar Kaldi

Við óskum Eydísi og Tindi, Haraldi og Össu til hamingju með árangurinn í þessu síðasta vorprófi ársins 2026 og einnig óskum við öðrum einkunna- og sætishöfum prófsins til hamingju með sinn árangur. Við þökkum dómurum, styrktaraðilum og Norðurhundum fyrir gott og skemmtilegt próf.


Nú er veiðiprófatímabilið búið í bili og við tekur sumarið með sýningum og sækiprófum og við hvetjum alla Bretona til að taka þátt og vekja um leið athygli á Breton.

🙂 Áfram Breton 🙂