Ellapróf FHD 8. og 14.mars 2026

Veiðiprófaárið er nú gengið í garð og ávalt er það Ellaprófið sem er fyrsta próf ársins. Veðurguðirnir voru ekki alveg með okkur í liði þetta árið en vegna veðurs var prófinu splittað upp á tvær helgar. 10 hundar voru skráðir í prófið og dómari var að þessu sinni Guðjón Arinbjarnarson. Eitthvað fannst af fugli í prófinu og nokkrar einkunnir náðust. Fuglahundadeild gefur besta hundi helgarinnar í OF styttuna „Náttúrubarnið“ til varðveislu í 1 ár og ávallt er mikil eftirvænting eftir því hvaða hundur hlýtur styttuna góðu. Ellastyttan er gefin til minningar um Erlend Jónsson fuglahundadómara. Tveir Bretonar voru skráðir og mættu í prófið að þessu sinni eða þau Hraundranga AT Assa og Mói.

Hraundranga AT Mói fékk 1.einkunn í OF á seinni degi prófsins og var valinn besti hundur prófs í OF. Mói og Kári hlutu því styttuna góðu ásamt því að vera nú gjaldgengnir í keppnisflokk.

Hraundranga AT Assa náði ekki að nýta sín slepp til einkunnar.

Hraundranga AT Mói1.einkunn OF og BHP
Dómari Guðjón Arinbjarnarson

Við óskum Kára og Móa innilega til hamingju með árangurinn sem og öðrum einkunnahöfum prófsins. Við þökkum Fuglahundadeild og styrktaraðilum prófins fyrir gott próf.

🙂 Áfram Breton 🙂